Um okkur – backyard

Um okkur

Home away from home

Um okkur

Staðarhaldarar í Bakgarðinum eru húsfreyjan í Jórvík og hundurinn Moli sem er að sjálfsögðu Yorkshire Terrier. Guðbjörg Halldórsdóttir er húsfreyjan í Jórvík sem elti ástina til York sumarið 2018 og hefur ástin bæði á "fræði"konunni og Jórvíkinni vaxið stöðugt. Bakgrunnur húsfreyjunnar liggur víða og hefur hún stóran hluta sinnar starfsævi verið í þjónustustörfum ýmiskonar, t.d. einkaþjálfari, nuddari og svo í veitingarekstri um 14 ára skeið áður en hún hélt á vit ævintýranna í Bretlandi. Þegar húsfreyjan var búin að ná áttum í nýju umhverfi og sækja ýmiskonar námskeið meðal annars í innanhúshönnun, sem NLP þjálfari (neuro linguistic programing), dáleiðslu og lífsráðgjöf var kominn tími til að huga að næstu skrefum.

Húsfreyjar og Moli á góðum degi
Fáum okkur ís í York

Nautnaseggur og fagurkeri

Húsfreyjan er mikill nautnaseggur og fagurkeri og finnst fátt skemmtilegra en að stjana við góða gesti. Þegar tækifæri gafst, til að festa kaup á húsi í bakgarðinum þá lá beinast við að setja þar upp gistihús og kynna fyrir sem flestum hvað Jórvík og nágrenni hefur uppá að bjóða. Það er engin ástæða til að liggja eins og ormur á gulli. Eitt er víst að það verður vel tekið á móti öllum gestum í Bakgarðinum og við munum gera okkar besta til að allir sem sækja okkur heim njóti sín á þann hátt sem þeir óska.

Hafðu samband

Við svörum þér innan sólarhrings

+44 (0) 794 434 6017